Málefni: Féll eftir utanlandsferð Gert af::
Stridsmadur, 17.07.2010 14:35:39
Jæja, búinn að vera reyklaus síðan í janúar, fór í ferð og var
eiginlega búinn að plana að leyfa mér að falla, sorglegt en satt, því
meira sem ég fór að hugsa um að fá mér tóbak með áfengi lét ég verða
af því hiklaust, þegar ég tók fyrsta smókin hélt ég að ég myndi segja
OJJ en þetta var of gott, það átti ekki að gerast þannig hehe, ég
reykti örugglega 12 vindla á 6 dögum, ég hét því við mig að skilja
þetta eftir í útlöndum en í gær fékk ég mér sígarettu og eina aðra í
morgun, ég hef 4 sinnum hætt með góðum árangri, mér vantar bara
stuðning, löngunin min er alltaf að vera reyklaus en oft þegar ég er
hættur í langan tima kemur upp einhverskonar leiði, og mér langar bara
að sækja i eitthvað og var það sígaretta, ég finn fyrir miklum
óþægindum i likamanum akkurat nuna, finn eiturefnin leika um mig,
ógeðslegt en smókurinn var svo góður, eins og að fá róandi við kvíða,
ég vissi það strax að þetta yrði hættulegt þar sem ég fann ekki fyrir
þessu "OJJ ég ætla ekki að halda þessu áfram". þannig að mér vantar
smá stuðning frá okkur, hef leitað hingað áður og með góðum árangri.
Re: Féll eftir utanlandsferð
av Perla,
17.07.2010 22:41:54
Þegar ég hætti, hugsaði ég ´með mér. Já ef ég fer i fríhöfnina verða
ég að splæsa í karton. Ég fór svo núna í júní, keypti karton en bara
ekki fyrir mig. Fór með það til fólksins sem ég var að heimsækja. 390
dagar komnir í reykleysi og er viss um að þú getur þetta líka. Er
rosalega ánægð að hafa ekki fallið þegar ég fór út. Góða helgi. Kv.
Perla.
Re: Féll eftir utanlandsferð
av Elva,
18.07.2010 13:49:59
Jabb stríðsmaður, þetta kannast ég sko við og örugglega fleiri.Ég hef
lent í þessu oftar en einu sinni að falla í reykbindindi við þessar
aðstæður.
EN maður verður að læra af reynslunni og undirbúa sig vel andlega og
líkamlega áður en farið er í fríhöfnina. Sleppa alveg bjórnum því hann
gerir mann kærulausan Fall er fararheill og mistökin til þess að læra
af. Látum ekki þessa kjánalegu fíkn sjórna okkur, við höfum bara eitt
líf....
Re: Féll eftir utanlandsferð
av grabbi,
31.07.2010 10:50:01
Hef ekki tölu á því hvað ég keypti oft síðasta kartonið af smávindlum
í Fríhöfninni. Bakkus kvöld- og helgarráðgjafi var oft skammt undan.
Hef nú "ótilneyddur" skilið við hvort tveggja, reykinn og ráðgjafann,
eftir langa og sterklega samtvinnaða samvist. Það er fyrst núna sem
maður veit hvað lífið er. Alltaf allsgáður og hvorki illa
fyrirkallaður eða lyktandi.
ÞÚ TAPAÐIR BARA ORUSTU EN HELDUR STRÍÐINU ÁFRAM.